ÁSBYRIG FASTEIGNASLA: ingileifur@asbyrgi: KYNNIR: VORUM AÐ FÁ Í EINKASÖLU GÓÐA 2JA HERB. 87.5 FM ÍBÚÐ Á 4. HÆÐ Í HRAUNBÆ 103, SEM ER LYFTUHÚS FYRIR 60 ÁRA OG ELDRI. SUÐVESTURSVALIR MEÐ SVALALOKUN. FRÁBÆRT ÚTSÝNI. ÞJÓNUSTUMIÐSTÖÐ Í EIGU REYKJAVÍKURBORGAR Á JARÐHÆÐ Í HÚSINU. ÍBÚÐIN ER LAUS STRAX.. Skipulag: Hol: stórt, nýtist sem sjónvarpshol, skápur, parket. Eldhús: nýleg mjög góð hvít innrétting, borðkrókur, parket, gluggi. Baðherbergi: mjög gott, allt flísalagt, innrétting, sturtuklefi. Svefnherbergi: stórt, góðir skápar, dúkur á gólfi. Stofa: stór og björt, gluggar í tvær áttir, parket. Gengt út á góðar suðvestursvalir sem eru glerlokaðar. Þvottaherbergi og geymsla: Tengi fyrir bæði þvottavéla og þurrkara, hillur, dúkur á gólfi. Í sameign er sér geymsluskápur sem tilheyrir íbúðinni. Úr anddyri hússins á jarðhæð er innangengt í þjónustumiðstöð sem er rekin af Reykjavíkurborg og þar er ýmiskonar félagsstarf og hægt að fá mat í hádeginu. Stutt í fallegar gönguleiðir í Elliðaárdal og verslunar- og þjónustukjarnan og heilsugæsluna í Árbæ.